Það er viðrini sem það er...

...

14.06.2009 20:29:52 / gunna-maja

..."æj, þetta er bara ég"...

Ójá. Kannski maður skelli í svona eitt blogg eða svo, svona þegar maður nennir ekki alveg að vera að læra...
Núna er ég búin með 54 daga í verknáminu, og á þar af leiðandi 25 daga eftir. Það þýðir að ég get svona næstum því verið viss um að vera búin rétt fyrir afmælið mitt, sem er 13 júlí, en þá verð ég TUUUUTTUGU ÁRA! svo ég er að verða gömul! úbbasí...
Annars hefur gengið bara alveg ótrúlega vel hérna. Guðný og Jóndór eru bara æði, og Sylvía minnir mig dálítið á Vigdísi systur mína. En það er nú bara fínt!
Sauðburðurinn var skipulagður og mun auðveldari en ég er vön, enda allt tipp topp hérna, og vaktaskipti allan sólarhringinn. Og svo ætla þau að gefa mér hrút í haust, og ég er búin að semja við Sylvíu um kaup á öðrum;) Svo þetta bara gæti ekki verið betra!
Annars var ég að plægja í fyrsta skipti í síðustu viku, og það gekk ágætlega, það er að segja plægingin sjálf. En svo þegar ég var að gá hvað klukkan var á símanum mínum hef ég sennilega ekki lokað vasanum nógu vel á eftir, nema hvað, að helvískur síminn datt út um gluggann, og ég plægði hann svona líka vel ofan í jörðina, og þar er hann og verður víst um ókomna tíð!! Fari það bölvað!!!:^)
En ég fékk nýjan síma núna um helgina í afmælisgjöf frá mömmu og pabba. Og ég er BAAAARA sátt með hann. Nema að ég er ekki með nein símanúmer... :( En þetta er svona sími, sem er með Walkmann inn í, eða svona eins og Ipod.. og svo get ég bara hlaðið í hann lögum úr tölvunni, og svo set ég bara headphones í hann og ta-da!
Tisa litla er í pössun hjá tengdó og Jóhanni, og er vægast sagt algjör prímadonna! Vælir í tengdó ef henni finnst maturinn ekki nógu góður, og er með heilt herbergi útaf fyrir sig. Svo ég er hrædd um að hún verði eitthvað fúl í haust!:lol: Hún hefur nú bara stækkað smá, sem er ágætt svosem, því hún er svo lítil og nett öll. Svo leikur hún sér að kettlingunum og fær að fara út í bandi, svo hún týnist ekki. Svo hún er eiginlega bara ofverndaður, og ofdekraður ormur.8)
Svo er ég að vinna í að redda okkur Jóhanni íbúð þar sem má hafa kött, svo það verði ekkert vesen, og hún geti farið út. Held að það reddist nú alveg, þó að það sem ég er að spá í sé ekki á Hvanneyri, bara í nágrenninu.
Svo er ég bara að bíða eftir að síðasta kindin beri, svo ég geti klárað kindaverkefnin. Og svo eru hin nánast tilbúin, bara smá svona fíniseringar eftir. Og eiginlega akkúrat þegar ég er búin í verknáminu á ein tíkin heima að gjóta, svo það verður nú gaman að fara heim að skoða nýja hvolpa!:d
Svo verð ég á Snartarstöðum hjá ömmu í sumar, en ætla nú samt að leifa mér það að fara til Vestmannaeyja í næstum viku með Jóhanni og fleirum. Hlakka ekkert smá til og held að það séu nú flestir bara að fara þangað!!
Annars reynir maður nú auðvitað að skjótast eitthvað norður, svona þegar Jóhann er í fríi. Annars verður örugglega voðalega lítið partýstand á manni í sumar, annað en síðasta sumar, en ætli maður reyni nú samt ekki að gera eitthvað skemmtilegt þegar maður verður 20 ára8) Kannski bara alsherjar útilega eða eitthvað þannig, aldrei að vita!
Svo komu mamma og pabbi og þau um helgina, og við fórum í svona túristarúnt hérna, sem var ágætt bara. Gaman að sjá þau eitthvað, og sýna þeim allt hérna. Og svo er bölvað plöntunámskeiðið 29 júní, en það er ljóta vesenið. Ég hélt að það væri bara hluti af verknáminu, en það er víst hluti af fríinu okkar í verknáminu. Svo jibbíjei, ég fæ að eyða heilum degi af fríinu mínu í það að veltast úti í móa með köngulóm og drullumalla eitthvað. Partý!!!

En nóg og meira en það..
Gunna M

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2009 20:32:37 / gunna-maja

Allt að smella saman...loksins:D

Vei vei:D Það er allt að skella smella saman... Kláraði síðasta skóladaginn í dag, og get ekki annað sagt en að það er alveg stórskrítið svona í mars, venjulega er maður nú ekki búinn fyrr en í maí eða júní... En svo er náttúrulega verklega námið eftir. Fer á Ærlæk II í Öxarfirði. Hlakkar til að komast aðeins úr túninu heima, gott að skoða eitthvað aðeins meira en það.. Maður er aldrei of duglegur að skoða landið... Fann mynd af bænum á google... Lýst bara alveg ótrúlega vel á þetta, búin að tala við konuna sem býr þarna, hana Guðnýju, og hún virkar mjög almennileg. Getur varla annað verið, enda fjárbóndi;) Hlakkar ólýsanlega mikið til þegar sauðburðurinn byrjar! það verður eitthvað skrautlegt, enda er ég bara vön sirka 300 kindum, ekki um 800! Svo það verður lífsreynsla útaf fyrir sig:D
Svo þarf ég að skila alveg gommu af verkefnum... En það ætti ekki að vera neitt vandamál.. ég rumpa því bara af fyrir sauðburð, eða klára það eftir sauðburð!;) Best að vera búin með sem mest sem fyrst, svo það maður sitji ekki límdur við skrifborðið síðustu dagana!
Svo er ég búin að fá pössun fyrir Tisuskottið8) Stína tengdó ætlar að passa litla orminn. Fór með hana í "heimsókn" um helgina þegar við Jóhann fórum norður. Þetta var alveg ótrúlega góð helgi, veðrið var geðveikt gott! Sól og blíða alla helgina, skelltum okkur í bíó, lékum við köttinn, gáfum í fjárhúsunum, skruppum í heimsóknir, ég þuklaði kasóléttan kött sem er alveg kominn á steypirinn, klappaði öðrum sem gýtur líka flótlega, og hlustaði á þann þriðja emja og góla til að ganga í augun á fressketti... Sem sé hálfgert kattafár þarna;) Svo var Stína svo almennileg að mála á kerti fyrir ferminguna hennar Gunnhildar, málaði rosalega flottann hest sem er að prjóna (ekki sokka)... Gunnhildur bara hæstánægð held ég:D Og svo á sunnudaginn settum við inn nokkrar rúllur í hlöðuna og veiddum eitt stykki hana og brunuðum heim í Borgarfjörðinn með hana í kassa, kerti í poka, dekk í farþegarsætinu og kött í fanginu; sérlega undarlegt fylgdarlið verð ég að segja.
Svo eru bleeessuð prófin að skella á! Fyrsta prófið á miðvikudag, svo nú er maður að fara í prófagírinn! Vona að það takist... Svo er ég að hugsa um að jafnvel hafa smá partý áður en ég fer norður, og skella mér svo á föstudagsins langa ballið;) Hitta eitthvað af þessu sveitaliði sem maður sér ekkert lengur! En það kemur í ljós með tíð og tíma;)

Farin að taka til svo ég geti lært fyrir próf!


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.03.2009 21:29:08 / gunna-maja

Almenn þreyta og pirringur...

Ég er frek.
Alveg voðaleg helvítis frekja, ef maður spáir í því. En nú er ég hrædd um að skrattinn hafi hitt ömmu sína. ALDREI í lífinu datt mér í hug að ég myndi hitta einhvern, sem að mínu mati, er frekari en ég. Og það ekkert lítið. En svona er nú lífið, maður veit aldrei hverju maður lendir í.

Annars er ég ennþá eitthvað slapparaleg. Óttalegur ræfill. Fór og hitti vin minn hann Lækni í dag. Jei. Svo gaman. Eða þannig.
Hann tók eitthvert strokupróf úr kjaftinum á mér. Alltaf jafn þægilegt. Og sem betur fer kom ekkert í ljós, en þá vitum við Læknirinn félagi minn bara ekkert hvað þetta er, sem er að hrjá mig. Svo blessaður sendi mig heim, með þau skilaboð að ég ætti að kaupa mér strepsils, fá mér að éta þar sem maginn var tómur, og drullast svo til að skríða upp í rúm og reyna að sofa. Og éta vítamín. Vúúhúúú... Ávalt gaman að bryðja bragðvond vítamín í tíma og ótíma. Og sjúga strepsils! Svo nú sit ég á borunni að gera ekki neitt, nema sjúga strepsils, og er að drepast úr hausverk og hósta.

En ég fór nú í tíma í dag. Duglega ég ha! Plöntuvernd í tvo tíma, sem er samt meira að læra að drepa óæskilegar plöntur og þær pöddur sem villast á vitlausa staði. Greyin. Eru bara að éta sig sadda af einhverjum jurtadruslum, þegar skyndilega: GAAAAAS! eða eitthvað svoleiðis... og Þetta ætla ég að kunna það vel að ég megi fá eiturefnaskírteini. Og þá ætla ég að drepa köngulær. Mér er alveg sama þó að þær séu "voða góðar", mér finnst þær alveg hreint út sagt viðbjóður! Starandi á mann með mörg augu, tilbúnar að skríða á mann úr öllum áttum með þessar ógeðslegu lappir sínar. Hefur engum dottið í hug að rækta lappalausar köngulær?

Við vorum á fullu að gera einhver verkefni allan tímann. Reikna út eiturmagn í blöndur til að myrða hitt og þetta. Og ég verð að segja að mér leið bara ekkert sérstaklega vel á meðan. Var öll á floti í köldum svita, leið eins og það væri einhver að úða á mig ísköldu vatni. Enda endaði það með því að ég fór niður, hóstandi eins og mæðiveikt rollugrey, kíkti í spegil og sá að ég var eins og albínói, stökk á postulínið og ældi öllum morgunmatnum. D-e-l-i-c-i-o-u-s! En mér leið mikið betur á eftir, fór aftur í tíma, og hélt áfram að vera pirruð og leiðinleg.

Síðan var girðinganámskeið. Missti af svona helmingnum, þar sem ég þurfti að fara til læknisins, en ég vona að það sé í lagi. Get nú eitthvað skoðað af þessu á netinu, en hitt verður bara að bíða betri tíma. Held ég sé komin í smá bobba með skólann. Hef samt alltaf skilað öllum verkefnum og gekk ágætlega í prófunum. Samt aðeins lægri einkunnir en á síðustu önn. Er náttúrulega ekkert sátt við það, en þetta er bara búið að vera svo fljótt að líða, að mér finnst ég varla vera byrjuð í skólanum ennþá. Og samt eru bara 2 og hálf vika í lokapróf!

Annars hef ég tekið þá gáfulegu ákvörðun, að vera ekkert að drekka þangað til skólinn er búinn. Nenni þessu bara ekki lengur. Og það er líka ekkert gaman að vera þunnur og ógeðslegur, þegar maður er hálf slappur fyrir. Ætla samt á grímuballið í næstu viku. En svo verður þessu bara tekið rólega held ég. Ætla að einbeita mér að prófunum sem styttist í og ætla að reyna að losna við þennan hósta. Svo verður maður að reyna að vera sem mest hjá ömmu og svona áður en farið verður í útlegðina í verknáminu.

"en meira er ekki í þættinum að sinni, veriði sæl"...

Björgunarkúturinn fer ekki neitt!

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 19:43:15 / gunna-maja

Uppgufað astmapúst og andleg leikfimi!

Ég er með áráttu.

Alveg óþolandi áráttu, sem felst í því að ég bara GET EKKI látið herbergið sem ég þarf að búa í, eða í núverandi tilviki sofa í, í friði! :$ ég þarf alltaf að vera að breyta því, og reyna að finna út hvernig uppröðun á húsgögnm hentar mér best. Er grínlaust sennilega búin að breyta svona allavega 10 sinnum frá því að ég flutti inn í Gunnlaugshæðina, en það var bara í bryjun árs. Alveg það sama máttu herbergisfélagar mínir á heimavistinni á Akranesi þola viku eftir viku... Auuuumingja skinnin.

Óttalega speeees.

Annars er mest lítið að frétta af mér, bara sama og venjulega, það er að segja veikindi og aftur veikindi! Er komin með alveg upp í kok af þessum skratta; hálsbólgu, eitlabólga og svo það nýjast eyrnabólga.:$ Svo ég fékk endanlega nóg í dag og skellti mér til læknis, svona líka almennilegur maður, enda hét hann Jóhann;) Lét hann kíkja í eyrun á mér... "Vá, ég sé bara út hinu megin!".. eeeða ekki ;) Samt spurði hann, eftir að hafa litið í eyrun á mér hvort ég væri nýbúin að skúra!:lol: En allavega er ég komin á meðalsterkt penicillin, sem ég á hvorki að fá sveppasýkingu af eða niðurgang (sagði hann) og svo fékk ég líka parkódín forte, sem getur þýtt að ég verð eins og sjóveik belja... Þoli það ekki alltaf;)

Svo nú má ég ekki drekka...

Ekki það að ég hafi neitt verið að stunda það í óhóflegu magni, því síðustu fimmtudaga hef ég bara tekið því rólega, því það er ekki til að bæta það að vera þunnur ofan í svona hor og slef situation!8) og plús að ég fékk ælupest, sem er alveg nóg svo maður fari nú ekki að auka gubberýið enn meira! Skellti mér samt á 80's ball, og sé ekki eftir því... drakk ótæpilega af bollu kvöldið það, og held að það sé svei mér NÓG bara...

Næstu helgi er það svo Brautartunguþorrablót, og prófavikan byrjuð. Búin í einu, skeit bara upp á miðjan hrygg, en ekki langt upp fyrir hnakka eins og svo oft áður, bíð spennt eftir útkomunni úr þeirri gáfulegu tilraun minni til að virðast örlítið minni mongó en margir halda.8)

Skelli hérna inn svo sem tveimur stykkjum af asnalegum og illasamsettum vísum;)

TA-TA!!:haha:

Fólkið sem kann ekki á klukku:

Á annarri hæð er lífið oft leitt,
og lítið við skiljum það flest.
En kannski það sé því þau heyr'ekki neitt,
og glíma við hugsanabrest?

S.J.Ó.Þ. heit?

Í spandexbrókum hún sprangar,
og spyrst það fljótt út um allt.
Marga menn í hana langar,
svo aldrei verður henni kalt.

Fimmtíu og þrjá eða fjóra,
hún hefur í rúminu hitt.
Alla mis gamla og stóra,
og þess vegna er hún svo fitt.

Alltaf hún ætlar í megrun,
því henni finnst hún of feit.
Telur að að því sé fegrun,
og þannig hún verði sjóðheit.

En spandexið öllu skal bjarga,
og spauga verður eins og spýta.
Svo hittir hún mennina marga,
því rúmið, það verður að nýta!

Með árunum eldist svo Lauga,
og hrukkurnar fara að sjást.
En hún heldur áfram að spauga,
og fylla líf sitt af "ást".

Börnin verða býsna mörg,
með miklu fleiri mönnum.
Af þreytu og streytu verður örg,
og lúin mjög af önnum.

Síðbrjósta verður hún síðan,
er árin sjötíu nálgast.
Og blessuð verður svo blíðan,
er hún Spauga á endanum sálgast.

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 15:37:17 / gunna-maja

Herra Drullustingur

Komiði sæl og blessuð...!

Herra Drullustingur er búinn að vera "fasta"gestur hjá mér núna í bráðum 2 vikur... og hann er alveg hrútleiðinlegur helvítið!:^) ótrúlegt hvað maður getur orðið þreyttur á honum.. Og svo er kvef og hálsbólga og hósti ekki að bæta þetta.:$ En það er nú allt að skána. Talaði við lækni í morgun, um það hvort það væri nú ekki sniðugt að fara að losa sig við Herra Drullusting, sem við urðum síðan algerlega sammála um að væri búinn að vera að visitera mig aaallt og lengi, svo nú er mamma að kaupa skitupillur handa mér í apótekinu "as we speak"... Hægðatregða here we come!:haha:

Skólinn er byrjaður... ótrúlegt en satt, enda kominn febrúar. Og ég bara skil það ekki, ég sem er einhvern veginn ekkert búin að fylgjast með... Er eitthvað svo úti að aka, eða nei reyndar ekki.. bílinn er sennilega stærsti skaflinn á hvanneyri þessa dagana þar sem ég einfaldlega nenni ekki að keyra. Þarf það líka svo lítið. En ég er voða lítið búin að fylgjast með þar sem ég er búin að vera soddan aumingi... Asnaðist samt sem áður til þess að bjóða mig fram í Skemmtinefnd og ótrúlegt en satt þá endaði ég í henni... Haha.. get skipulagt skemmtilegar "hópklósettferðir" þessa dagana, þætti það mjög gaman þar sem það er ótrúlega einmanalegt að sitja einn tímunum saman á postulíninu með Herra Drullusting. :lol: Eina sem ég get gert mér til dægrastyttingar meðan á því stendur er að setja hvítan sokk með svörtu fötunum mínum í þvottavélina og telja hvað hann fer marga hringi...en það er eins og að telja kindur fyrir svefninn...:|
Lauga átti afmæli í gær... Orðin alveg 22 ára, eeeeldgömul miðað við mig, sem er bara 19. Alveg hreint með ólíkindum að ég sé að verða 20 ára á þessu ári.. finnst svo stutt síðan ég var að hella djúsi framan í barnapíuna mína og fara í pikknikk á ruslahaugunum... og já eg var ekki að ÉTA neitt af ruslahaugunum heldur sátum við alltaf ofan á gömlu ónýtu bílunum, alveg vooðalega notalegt í sólinni..;) En svona er lífið.. og Amma er að verða 80, mamma 40, Inga frænka 50, ég 20 og svo hefði langamma orðið 100 ára. Svo það verða bara nonstopp partý í ár!;)
Annars held ég að mér gangi vel í skólanum. Skil alveg allt þó ég hafi misst úr svolítið, áburðarfræðin, heyverkun, plöntuvernd, umhverfisfræði, hriðing og aðbúnaður búfjár... ÞETTA ER PÍS OFF KEIK! :haha: er bara bjartsýn á prófin sem er að styttast í...
Svo er 80's ball á fimmtudaginn... búin að finna mér alveg ótrúlega ógeðslegt outfitt og það er eins gott að ég verði ekki með neina helvítis drullu þá, því þá er það bara tappinn takk fyrir!!:$:klikk:
En ég er farin að læra... og ennþá með björgunarkútinn as allways!8)
Drullustingskveðjur af GunnLaugshæðinni í Skólaflöt 8!!:lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.12.2008 22:00:55 / gunna-maja

...svona rétt fyrir prófin...

Tíminn líður ALLTOF hratt... Í dag var síðasti kennsludagurinn, sem er alveg ótrúlegt þar sem manni líður eins og maður sé nýbyrjaður í skólanum!! En það er kannski bara af því hvað það er búið að vera ótrúlega gaman hérna :haha: Á örugglega aldrei eftir að sjá eftir því að hafa loksins drullast hingað... nógu mikið var ég búin að spá og spekúlera! Og ég er búin að kynnast alveg hellinga af æðislegu fólki... Og búin að eignast marga góða vini :haha: Er líka alveg að "finna mig" í þessu, endalaust tal um kindur og svoleiðis, svo þetta bara gæti ekki verið betra:D
Fórum til dæmis í gær upp að Hesti að læra að þukla á sauðfé;) ekki er það nú slæmt að kunna það... óttalega perralegt en svona er þetta :$ Og svo fórum við Jóhann og Lauga smá leiðangur í gær að sækja okkur jólagreinar og svoleiðis... bara gaman:D kíktum aðeins í bústaðinn, og svo í Reitinn. Og Skorradalurinn náttúrulega allaf flottur með snjóinn, svona passlega mikið af honum:haha:
En annars er bara búið að vera hellingur að gera... búin í málmsuðu, og er ekki frá því að ég sakni Jóa Ellerts strax!Hann er æði! Klúðraði pínu í málmsuðunni, en það reddaðist, fékk 8 í lokaeinkunn 8| og meira að segja PABBI var ánægður með það, og sagði að það væri ættgengt að vera góður í málmsuðu;) svo ég hlýt að vera að gera eitthvað af viti:D ...loksins;)
Svo mættum við Lauga með Últramega-vöfflujárnið mitt og vöffludeig í síðasta tímann í búvélafræði, og gerðum vöfflur fyrir allt liðið;) eins gott að við fáum plús fyrir það á prófunum;) ..bæði munnlegt og skriflegt, og ég er sjúklega stressuð fyrir munnlega prófið! en það hlýtur að skítreddast eins og allt hefur gert hingað til!
Fór svo norður um síðustu helgi með Jóhanni...:haha: mamma hans er æði og amma hans ekkert nema almennilegheitin:d ég sem var búin að vera svolítið stressuð að hitta þær, en svo var það ekkert mál... Og við fórum í bíó á Akureyri, sem ég var by the way að fara á í fyrsta skipti síðan ég var pínulítil, og þá sofandi í bílnum! En við fórum á Madagaskar 2, og hún var æði:D
og jááá.. svo eru pófin að byrja á mánudaginn, og ég er í 6 prófum! og tveimur próflausum áföngum. Vona að mér gangi jafn vel í þessum prófum og mér hefur gengið í vetur, er með 8,5 í meðaleinkunn úr síðustu áfangaprófum og er bara nokkuð sátt með það svosem...:d Væri nú fúlt ef maður færi að skíta upp á bak í lokaprófunum!!!
En það er kominn tími til að byrja að læra fyrir prófin! Næsta ár er allt í rugli.. veit ekkert hvernig þetta verður, en það kemur í ljós!
Yfir og út, ég er ávalt með björgunarkút!!! :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 16:41:18 / gunna-maja

Brjáluð vika og biluð helgi;)

:haha:Komiði sæl og blessuð...!
Ég nenni bara ekki að læra. Sorglegt en satt. En ég hélt að ég ætti það nú inni að slaka á, en síður en svo! Þarf að skila einu verkefni í dag, eða bara eftir smá stund reyndar.. og svo þarf ég að klára skelfilegu Litaerfðaritgerðina mína. Hún er hryllingur. Troða einhverjum helvítis heimildum inn í allt! Skemmir alveg lookið á ritgerðinni sko;) hehe... En ég veit þó allavega hvernig litir erfast í sauðfé eftir þetta... Stefán Aðalsteinsson líklega sá eini sem hefur nennt að pæla mikið í því, enda er ég bara búin að lesa greinar eftir hann um þetta. :$ Og sú nýjasta er frá 1986. Ég var ekki einu sinni til þá!
Er búin að vera í basli með magann á mér í vikunni.. þoli ekki þetta helvíti! Virkilega vont að liggja í einum hnút með einhverj skrattans krampa... en það góða við það er að venjulega þarf ég ekki að taka töflur við þessu, ehldur bara borða harðfisk í tíma og ótíma..En ég er víst ekki búin að vera nógu dugleg við það í vikunni.. En ég er að bæta úr því..(akkúrat núna meirað segja!) Og svo fékk ég töflur líka, sem slá á það mesta, og svo er það bara íbúfen... eða parkódín. Samt ekki parkódín forte, þá verð ég eins og ég sé sjóveik! ;)

Var á fimmtudagsskralli í gær... enda var fimmtudagur! :haha: Kyntröllalestin spilaði á barnum... alltaf þurfa þessar lestir að vera að troða sér allstaðar!:s piff... En það var bara stuð, og LAUGA er að vinna í einni keppni, sem ég tek reyndar ekki þátt í, enda rústaði ég FEITT hinni keppninni ;) en sem dómari held ég að Lauga sé komin með ansi gott forskot!:d Svo um hálf tvö fór ég nú bara uppá vist, og þvílíkur hávaði í fólki! Hélt á tímabili að allur skólinn væri á ganginum, en það voru víst bara nokkrir óþekktarormar sem voru ekki jafn þægir og ég að fara bara beint að sofa! En einhvern vegin tóst mér að sofna alveg eins og grjót og ég vaknði ekki fyrr en einhvern tíma undir morgun með sting í maganum.. Svo ég fór ekkert í skólann, sem er baaaara asnalegt, þar sem ég var ekkert þunn!
Og já, ég fór líka í bæinn í gær... Var að gá hvort ég fyndi nú ekki eitthvað að vera í á árshátíðinni, en neiiiii... Mátaði milljón kjóla, en fanst þeir ekkert flottir..Nema einn, en hann var of STÓR!!8| ótrúlegt en satt..! En ég keypti bara eitthvað annað í staðin.. Var bara þrusugaman, ég Katla Lauga og Vigga litla bara að versla af okkur rassinn.. Eða allavega ég... Og sé ekkert eftir því:d

Svo er uppboð í kvöld á Hreðjari sjötta, en greyið verður boðið upp á krónur 500 á hlut, og auðvitað kaupir maður hlut! Held ég nýti mér samt ekki þann rétt á erfðaefni sem ég hef, því maður verður að sækja það sjálfur... Og mér lýst bara ekkert á að runka einhverjum hrút í dollu eða eitthvað!! 8| En auðvitað skellir maður sér í fjósið í partýið og svo er víst Villibráðarveisla heima, og Lauga og Jóhann ætla með mér til halds og trausts! ;) Vafalaust bullandi fyllerí á öllum og ég ætla ekkert að vera undanskilin því, o sei sei nei! :lol: bara gaman að detta í það með ma og pa og öllum þarna... Sakar ekki að hafa Laugu skemmtikraft og Jóhann með:haha:

Svo á morgun þarf ég víst að vakna alveg ELDSNEMMA og bruna í Borg óttans í klippingu, hárgreiðslu og förðun og guð má vita hvað! Og já, kaupa bindi, má ekki gleyma því! :lol: jedúdda... Og svo er árshátíðin og þá skal sko tekið á því takk og plís! Verður örugglega brjálað stuð!.. Rosalega fancy dinner og svo hljómsveit.. Og öll herlegheitin á Hlöðum í Hvalfirði svo það verður stuð í rútunni! :* Hlakka ekkert smá til! :d
En það er komið nóg í bili! ;)
Yfir og út ég er ennþá með björgunarkút!


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 19:33:00 / gunna-maja

...eina ferðina enn... ;)

Ákvað bara að búa til nýtt blogg.. hitt er hálfgert drasl.. ekki einu sinni hægt að commenta útaf einhverju bulli...8|
En allavega, þá er alveg hellingur búinn að skee.. Próf og læti nánast stanslaust að manni finnst! En ég er alveg sátt við prófin núna, gekk bara ágætlega þó að efnafræðin hefði alveg mátt vera betri... En það er ekki við öðru að búast þegar maður nennir ekki að læra almennilega fyrir prófið... En ég fékk 9,5 í prófinu sem var daginn eftir Ný-dönsk:D Svo ég er sátt:D 
En já, Ný-dönsk var ÆÐI! það var geðveikt gaman:D Sé sko ekki eftir að hafa farið...:D og já, KÝRNAR ILMA!.. hahaha

Svo eru náttúrulega alltaf fimmtudagsfyllerí, og maður sleppir því nú ekkert... en samt, maður reynir nú að hemja sig, en á fimmtudaginn ákvað ég bara að taka því rólega, en það endaði ekki betur en svo að ég var með dúndrandi hausverk allan föstudaginn! Og samt fann ég varla á mér...

Og svo fór ég heim á þriðjudaginn í kjötsúpu með Jóhanni... Og til að gera langa sögu stutta þá er bróðir minn mesta plága hérna megin á hnettinum!... en hann er samt fyndinn bölvaður...! Og kjötsúpan var geðveikt góð:D ég eelska kjötsúpu:D

Og svo var matarboð á miðvikudaginn.. Svaka fínt bara,heitur réttur í forrétt, partýskinka í aðalrétt og kókosbollukaka í eftirmat:D baaaara gott,,, enda er maður bara að verða feitari hérna!
Og svo er bar örstutt í næstu próf, sem eru þá lokaprófin.. pínu stress en það hlýtur að reddast.. svo er líka próf í dráttarvéla einhverju.. svo maður fái réttindi á dráttarvélar... já, ég að keyra traktor! En það hefur reyndar bara gengið vel.. ekki búin að drepa neinn eða keyra á neitt!!

En nóg í bili.. farin að skrifa ritgerð og horfa á dagvaktina!....
...og fá mér gott í kroppinn! AHAHAHAHA


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 19:09:55 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Sú sem ekki lenti í lakinu..;)
Heiti Guðrún og María og er Björnsdóttir, en kölluð Gunna Mæja. Sveitalúði í húð og hár, er í Bændaskólanum á Hvanneyri og er að fíla það í botn!:D Gáfnaljós með sprungna peru!
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 1897